JA slide show
 
Upphafssíða
Velkomin á mt bókhald

Mánatölvur ehf voru stofnaðar árið 2002 og störfuðu fyrst við tölvukennslu, bæði með eigin námskeið og í samvinnu við Fræðslunet Austurlands.  Starfsemin þróaðist síðan meira út í bókhaldsþjónustu fyrir fyrirtæki og einstaklinga með rekstur.  

Nú þjóna Mánatölvur fjölda fyrirtækja í færslu bókhalds, innheimtu og launaútreikningum og til gamans má nefna að árið 2006 voru starfsmenn sem fengu launaseðla í gegnum Mánatölvur um 700 talsins í 25 fyrirtækjum og stofnunum.

Frá september 2006 hafa Mánatölvur ehf verið umboðsaðili fyrir dk-viðskiptahugbúnað og geta því boðið heildarlausnir á bókhaldi fyrirtækja, verkskráningum, skipulagningu og uppsetningu kerfa.

dk-viðskiptahugbúnaður er einn sá notendavænsti á markaðnum og sanna undirtektir þakklátra notenda það, en hugbúnaðurinn hefur náð gríðarlegri útbreiðslu og er orðinn útflutningsvara auk þess sem fjöldi bókhalds og endurskoðunarskrifstofa hafa tekið búnaðinn í notkun sína.


Mánatölvur selja einnig vírusvarnir fyrir heimili og fyrirtæki frá Friðriki J. Skúlasyni, F-Prot sem er arftaki hins vinsæla Lykla-Péturs.

 



Flýtimöguleikar






Hafðu samband

Tilkynningar